Körfubolti

Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botn­liðinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tryggvi Snær byrjaði ekki leik dagsins.
Tryggvi Snær byrjaði ekki leik dagsins. Bilbao

Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik í leik Bilbao í ACB-deildinni í körfubolta á Spáni. Það dugði hins vegar ekki til sigurs þar sem Palencia mætti til Bilbao og vann 17 stiga sigur, lokatölur 80-97.

Tryggvi Snær byrjaði leik dagsins á varamannabekknum einhverra hluta vegna. Hann hefði betur byrjað leikinn en aðeins Thijs De Ridder skoraði fleiri stig og tók fleiri fráköst en íslenski landsliðsmaðurinn. De Ridder var með 21 stig og 11 fráköst á meðan Tryggvi skoraði 13 stig og tók 6 fráköst.

Palencia vann leikinn með 17 stiga mun en um er að ræða sjötta sigur liðsins á tímabilinu. Það situr sem fyrr á botni deildarinnar. Bilbao er í 11. sæti með 13 sigra og 19 töp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×